PPVerk sinnir hönnun íbúðar- og atvinnuhúsnæðis og vinnur deiliskipulagsbreytingar.

Við leggjum áherslu á góða samvinnu við verkkaupa, frá fyrstu hugmyndum hönnunar til fullbúins húss. Markmiðið er að hönnunin nýtist vel og falli að umhverfi sínu.

Vinnuferli

01

Fyrsti fundur

Farið yfir óskir og þarfir, lóðina, skipulagsskilmála og kostnaðarramma.

02

Frumdrög

Skissur og þrívíddarlíkan í Revit þar sem lausnin er mótuð í samráði við verkkaupa.

03

Aðaluppdrættir

Fullunnir uppdrættir og fylgigögn, samræmd við verkfræðinga og lögð inn til byggingarfulltrúa.

04

Á framkvæmdatíma

Eftirfylgni og breytingar á teikningum vegna framkvæmda, fram að lokaúttekt.

Ertu með verkefni í huga?

Segðu okkur frá því og við finnum næstu skref saman, eða hringdu í 698-7173.

Hafa samband
Páll Poulsen

Páll Poulsen

Byggingafræðingur · löggiltur hönnuður

Löggilt starfsheiti byggingafræðings (1999). Löggilding til að hanna aðal- og byggingaruppdrætti, uppdrætti að skipulagi lóða og deiliuppdrætti (2000).

698-7173
palli@ppverk.is

PPVerk - Hönnun og ráðgjöf

Dýjagata 1
210 Garðabær
(+354) 698-7173
ppverk@ppverk.is

Þjónusta

Hönnun nýbygginga

Íbúðarhús, sumarhús og atvinnuhúsnæði, frá fyrstu skissu til samþykktra uppdrátta.

Breytingar og viðbyggingar

Endurbætur, viðbyggingar og breytt notkun húsnæðis.

Aðaluppdrættir og byggingarleyfi

Uppdrættir og öll fylgigögn vegna umsóknar um byggingarleyfi, þar á meðal skráningartafla, varmatapsútreikningar og lífsferilsgreining (LCA), og samskipti við byggingarfulltrúa.

Deiliskipulag

Deiliskipulagsbreytingar og uppdrættir að skipulagi lóða.